Maestra
Hörbuchdownload - Maestra Trílógían, Gelesen von: Vera Kristinsdóttir, Ungekürzt, Ungekürzt
€12.95
(inklusive MwSt.)
Verfügbarkeit: Lieferbar
Zusatztext
Judith Rashleigh vinnur á daginn á virðulegu uppboðshúsi í London en á kvöldin á vafasömum bar til að ná endum saman. Þegar hún áttar sig á samsæri í dagvinnunni missir hún starfið áður en hún getur komið upp um svikin. Í örvæntingu sinni þiggur hún boð til Frönsku rívíerunnar, sem endar með ósköpum. Alein og í lífshættu þarf Judith að treysta á hæfileika sína til að passa inn í á meðal efnuðu elítunnar á meðan hún reynir að koma upp um listaverkasvindlið sem kostaði hana starfið. Þetta er fyrsta skáldsagan í seríu sem heldur lesendum í heljargreipum. Bókin hrífur þig með sér í æsispennandi ferðalag um sögusviðið meðal hinnar ríku og frægu í Suður-Evrópu með aðalpersónu sem er eins skörp og Amy Dunne og eins hættuleg og Lisbeth Salander.
Autorenportrait
L.S. Hilton er höfundarnafn Lisu Hilton, sem er breskur sagnfræðingur, blaðamaður og metsöluhöfundur. Fyrir utan Maestra-trílógíuna, hefur hún skrifað fjölda sögulegra skáldsagna og ævisagna um sögulegar persónur. Megin innblástur hennar kemur frá áhrifamiklum konum í gegnum mannkynssöguna. Lisa Hilton hefur starfað sem sjónvarpskynnir, skrifað fjöldann allan af handritum fyrir sjónvarp sem og greinar í ýmis blöð og tímarit. Hún skrifar á ítölsku, frönsku og ensku, hefur m.a. ritað greinar í tímaritin Vanity Fair, Elle og Times og hefur unnið til nokkurra verðlauna fyrir greinaskrif sín. Lisa ólst upp í Norður-Englandi, en hefur búið víða, meðal annars Flórens, París, New York, Mílanó og London.
Weitere Details
Erschienen: 01.04.2026
Umfang: 720 Min., 34 Tracks, 461.33 MB
Sprache: ICE
ISBN/EAN: 9788727311401
Umbreit-Nr.: 763830
